Leita í fréttum mbl.is
Embla

Joost Invite

Ég er tilbúinn til að senda invite þá sem vilja prófa Joost. Sendið mail á straumland[at]gmail[dot]com

427216A


mbl.is Joost formlega hleypt af stokkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins blog

Já langt síðan maður bloggaði síðast og soldið margt hefur gerst. Ég er ekki alveg viss um hvar ég á að byrja en ætli það merkilegasta verði ekki fyrst fyrir valinu.

 

Ingibjörg Ösp

Ein besta og elsta vinkona mín, hún Soffía, eignaðist barn 5. apríl. Hún var tæpar 7 merkur við fæðingu og já það er soldið lítið en hún ákvað að koma mánuði fyrr í heiminn. Hún var nefnd Ingibjörg Ösp og er ákaflega sætt lítið kríli. Hér er Barnalandssíðan hennar. Ég vil óska nýbökuðum foreldrum og innilega til hamingju.

 

Nýtt tölv

Já ég fjárfesti í nýrri tölvu og það borðtölvu en þannig hef ég aldrei átt áður. Þetta er uber duber ofurvél sem getur allt en ég nenni samt eiginlega ekkert að fara út í hvað býr inni í henni. Hún er reyndar með Vista og mér líkar alls ekkert vel við það stýrikerfi. Það er bara XP með miklu meiri öryggisfítusum sem eru ákaflega pirrandi. Það eru samt smá viðbrigði að reyna að skipta frá frá gömlu góðu fartölvunni yfir í þetta risa stóra apparat og hún er soldið ógnvekjandi. Nota reyndar fartölvuna enn í flest hún er svo góður vinur minn. Eftir að ég fékk nýju tölvuna er ég farinn að spila leiki. Ég spila reyndar aldrei leiki og er ekkert rosalega góður í þeim en ég er að læra og verða betri. Leikurinn sem ég spila núna heitir Sniper Elite og er bara alger snilld. Skotleikur þar sem að það þýðir ekkert að hlaupa um og skjóta allt sem maður sér heldur þarf að læðast um og velja sér skotmörk og komast um óséður.

 

Stjórnmálin

Samfylkingin er að klúðra þessu og þeim hefur ekki enn tekist að fá mig til að kjósa sig. Reyndar hefur engum enn tekist að sannfæra mig en val mitt er á milli Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Gallinn hjá Samfylkingunni er að þeir eru of neikvæðir og gera allt of mikið í að nefna mistök núverandi stjórnvalda í stað þess að eingöngu nefna hver stefna þeirra er. Með því að vera að gagnrýna og nefna hvað Framsókn og Sjálfstæðismenn hafa gert síðustu ár er Samfylkingin að beina athyglinni frá sér að stjórnarflokkunum þó að það sé verið nefna neikvæðu hlutina og með þessari neikvæðni er það sem Samfylkingin ætlar að gera jákvætt ekki að skila sér eins vel og það gæti ef að stefnumál Samfylkingarinnar væru bara rædd án gagnrýni á verk stjórnvalda.

 

Hafnarfjörður

Hafnfirðingar gerðu mistök þegar þeir höfnuðu breytingum á aðalskipulagi og ég er enganvegin sammála Samfylkingunni um að íbúakosning sé rétta leiðin. Ég tel mig vera að kjósa stjórnvöld vegna þess að ég treysti þeim til að taka upplýsta ákvörðun sem ber hag minn fyrir brjósti ekki að þeir firri sig ábyrgð með því að færa völdin í hendur íbúanna þegar taka skal ákvörðun sem gæti orðið óvinsæl.

 

Virginia

Suður Kóreskur drengur tók sig til og skaut 32 og svo sjálfan sig. Ég hef keyrt í gegnum Virginia og gist þar í nokkra daga og mér fannst það ákaflega friðsælt ríki.  Skil samt ekkert hvað er svona merkilegt við það að 33 hafi látist. Hvað dóu margir í Írak sama dag? Fann ekki upplýsingar um það en það dóu 127 í dag.  Hver ber ábyrgð á því? "President ShitForBrains" (Bill Maher kallar Runna forseta það). Ég samhryggist náttúrulega fjölskildum og vinum þeirra sem létust en mér finnst líf Bandaríkjamanns ekkert merkilegra en líf Íraka. Mesta vitleysan er samt að stjórnvöld í Suður Kóreu hafa beðist afsökunar á því að þegn þeirra hafi framið morðin. Sé ekki að "President ShitForBrains" muni nokkurn tíman biðjast afsökunar á athöfnum sinnar þjóðar í Írak eða annarstaðar í heiminum.

 

Hef ekkert meira að tala um núna einfaldlega vegna þess að ég man ekki meira af því sem ég ætlaði að tala um. Reynum að horfa jákvæðum augum á lífið og tilveruna og hættum að einbeyta okkur að því sem er vont í heiminum.    


Áfram Íran!!!

Eins og áður hefur komið fram þá er ég ákafur stuðningsaðili Íranna í deilu þeirra við BNA og SB (Stóra Bretland). Bretar verða bara að líta í eigin barm og hugsa sinn gang áður en þeir gagnrýna aðrar þjóðir fyrir að handtaka fólk. Horfði á Road To Guantanamo nýlega og miðað meðferðina sem þar er sýnd á föngum þá eru Bresku hermennirnir á lúxushóteli og þó að þeir séu aðeins píndir meðan myndavélin er ekki á þeim þá kemur fordæmið frá aðferðu BNA og SB í Guantanamo. Hef samt trú á að Íranir séu þroskaðri en svo að fara að fordæmi BNA.

mbl.is Íranar segja alla bresku sjóliðana hafa játað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórbrjósta samfélag

Vil endilega koma því á framfæri að ég er ákafur stuðningsmaður stórbrjósta kvenna og ef ég get orðið að einhverju gagni í stórbrjósta samfélaginu þá hef ég áhuga á að veita alla þá aðstoð sem ég get. Hver er annars þessi Kelly Brook?

mbl.is Brook bjargvættur brjóstastórra kvenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bush er ekki í lagi!

Vil eiginlega bara benda á síðustu færslu mina sem fjallar um þetta. Hræsnin í Bush er alveg ótrúleg. Líttu í eigin barm mannfjandi og slepptu gíslunum úr Guantanamo áður en þú ferð að gagnrýna aðra.
mbl.is Bush segir handtöku 15 breska sjóliða vera óafsakanlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Iran

Mikil deila er á milli Breta og Íranna vegna 15 sjóliða sem eru í haldi Íranna. Deilurnar eru um hvort að sjóliðarnir hafi álpast inn í Íranska lögsögu eða hafi verið teknir í lögusögu Íraks. Ég ætla ekki að taka afstöðu til þess máls enda hef ég engin gögn sem ég get myndað mér skoðun eftir. Fagna þó að Rússar skuli taka af skarið og biðja um óháða athugun á málinu. 

    Íran hefur verið mikið í umræðunni upp á síðkastið og allt bendir til að "President Bombsalot" hafi mikinn hug á að ráðast á þá næst. Hann er hvort sem er með meirihluta hersins í nágrenninu. Hvers vegna vill hinn sprengjuglaði forseti Bandaríkjanna endilega ráðast á Íran? Að baki því liggja margar ástæður, geri ég ráð fyrir, en þó virðist megin ástæðan vera sú að Íranar vilja kjarnorkuvæða þjóðina og það má víst ekki nema að Bandaríkin samþykki það. Það er reyndar mitt mat að ef að Íranar vilja koma sér upp kjarnorkuverum og jafnvel kjarnorkuvopnum þá mega þeir það. Það kemur engum við og allra síst Bandaríkjunum. Bandaríkin hafa marg oft sýnt það að þeim er ekki treystandi fyrir vopnum og því geta þeir ekki verið að skamma aðra. Þetta sýnir reyndar enn og aftur hræsni Bandarískra stjórnvalda. Eins er með þessa 15 sjóliða. Ég veit ekki betur en að Bandaríkjamenn, með samþykki Breta, haldi margfalt fleiri í gíslingu, í fangabúðum á Kúbu, án dóms og laga. En þegar að vesturlandabúar lenda í klóm Írana þá ætlar allt um koll að keyra. Sé ekki að það sé mikill munur þarna á. Svo skulum við ímynda okkur hvað myndi gerast ef að 15 Íranskir sjóliðar myndu óvart álpast inn í Breska eða Bandaríska lögsögu.

     En aftur að Sprengjuglaða Bandaríkska Forsetanum og deilu hans við Íran. Hvað mun gerast ef hann ákveður að ráðast inn í Íran (sem ég efa að hann þori að gera). Þá myndi Þriðja Heimstyrjöldin brjótast út og nú myndu vesturveldin væntanlega tapa. Íran er nefnilega ákaflega sterk þjóð hernaðarlega og eiga marga bandamenn. Íran hefur yfir 500.000 hermenn sem eru ávalt til taks ásamt 300.000 í vara liði. Svo eru 11 milljónir manna tilbúnir ef að kallið kemur sem gerir Íranska herinn að einum þeim öflugasta í heiminum í dag (og á morgun væntanlega líka). Það sem meira er þá er Íran ekki háð neinum með sín vopn þar sem þeir framleiða þau sjálfir og enginn veit nákvæmlega hversu vel vopnum búinn herinn er. En ég ætla að spá því að þetta muni nú allt leysast og ekki muni koma til hernaðar. BNA myndi (vonandi) aldrei fá stuðning annarra þjóða og Runni forseti er bara ekki svo rosalega heimskur. Bandaríska þjóðin myndi líka ekki taka það í mál að fara í annað stríð út af engu.


mbl.is Rússar vilja fá óháða skýrslu SÞ um deilu Breta og Írana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þyrlur

Ákvað að taka saman athugasemdir sem ég setti inn á bloggið hjá Stefáni Friðriki Stefánssyni.
Þar var er umræðan um hvort að það sé raunhæft að hafa björgunarþyrlu staðsetta á Akureyri.

"Eins og staðan er í dag þá á Landhelgisgæslan í erfiðleikum með að halda sér réttum megin við núllið og tekst það sjaldnast. Sú hugmynd að koma upp þyrluútibúi á Akureyri er ekki raunhæf miðað við rekstrarskilyrði Gæslunar. Kostnaðurinn við uppbyggingu aðstöðu er bara of mikill og rekstrarkostnaður við eina þyrlu með öllum þeim mannskap sem henni fylgir er mjög hár og væri það mjög óhagstæð rekstrareining miðað við að hafa allan mannskap og þyrlur á sama stað. Ef að ein þyrla væri ávalt staðsett á Akureyri þyrfti að fjölga þyrlunum úr 4 til að alltaf sé öruggt að það séu þyrlur í lagi og ekki sé komið að reglubundnu viðhaldi. Áður en þyrla fer til Akureyrar þarf að bæta rekstrarskilyrði Gæslunnar til muna."

Hér á eftir fer texti sem ég er bara nokkuð stoltur af og er seinni athugasemdin sem ég gerði við færsluna:

"Ef að vel væri staðið að björgunarþyrlu útgerð Íslendinga ætti að vera þyrla á Vestfjörðum, Norðausturlandi, Hornafirði og Suðvesturhorninu. Eldsneytis flugvél þyrfti að vera til staðar á landinum og þyrlurnar með búnað til eldsneytistöku á flugi. Fleiri þyrlur eins og TF-SIF þyrftu að vera til staðar vegna slysa á þjóðvegum landsins og útbúnar og mannaðar miðað við þau störf.

    Forgangsröðun í þjóðfélaginu virðist bara ekki vera rétt og allar úrbætur sem snúa að öryggi borgaranna virðast taka allt of langan tíma. Umræðan um kostnað verður of hávær og verðmiði settur á líf og limi íbúanna. Að minu mati á að setja öryggi landsmanna í algeran forgang og veita í það öllu því fé sem þarf. Hvert mannslíf sem tapast vegna þess að einhverstaðar er verið að spara er er algerlega óásættanleg fórn og á ekki að líðast í ríku og sterku nútíma þjóðfélagi."

 

Vil svo sérstaklega benda á þessa grein eftir Örvar Þór Kristjánsson sem ég er svo 100% sammála. Hvet ég alla til að skrá sig.

 

Að síðustu vil ég biðja stjórnmálamenn og háværa minnihlutann um að hætta að tuða um umhverfismál og stóriðju. Það eru mun mikilvægari mál sem þjóðin á að kjósa um og þá er sérstaklega í huga mínum samgöngumál. Í skoðannakönnun sem fréttablaðið gerði kemur í ljós að þjóðin setur velferðarmál í fyrsta sæti, Efnahagsmál í annað og svo skattamál. Umhverfismál eru ekki nema í fjórða sæti og fiskveiðimál og evrópumál reka lestina. Spurt var um þessi 6 mál og fólk beðið um að gefa þeim einkunn frá 1 til 5 eftir mikilvægi þeirra. Hagsmunasamtök eins og Framtíðarlandið verða að lækka róminn svo að aðrir komist að. Ég efa að við viljum enda eins og Bandaríkin þar sem að hávær og fjársterk hagsmunasamtök virðast geta ráðskast með stjórnvöld af vild. 


Þingið, bílslys, pólitíkin, jafnrétti og lífið bara almennt

Þingmenn...

 ...eru að flýta sér. Hjá þeim er þétt dagskrá og þegar ég skoðaði beinu útsendinguna frá vinnunni þeirra upp úr miðnætti í kvöld þá voru þeir enn að. Ætli að sé ekki skrítið að vinna vinnu sem er send út í beinni útsendingu til þjóðarinnar. Ég skil reyndar ekki þetta fyrirkomulag. Að rífa sig upp á rassgatinu rétt fyrir þinglok og reyna að klára of mörg mikilvæg mál á of litlum tíma. Sum mál sitja á hakanum á meðan yfir önnur er farið á hundavaði og allt fer bara einhvernveginn í vitleysu. Ég tel mig ekki hafa ráðið þetta fólk í vinnu til þess að þau komist auðveldlega í gegnum starfið með því að klára allt síðustu daganna. Mín tillaga er sú að þingið ákveði dagsetningu. Eftir þessa dagsetningu má ekkert nýtt mál koma fyrir þingið og þingmenn klári þau mál sem bíða. Þegar ekkert mál er eftir, mega hæstvirtir þingmenn fara og reyna að mikla sig fyrir okkur kjósendum og segja hvað þeir lofi að vera rosalega duglegir næstu 4 árin.

 

Banaslys... 

...í umferðinni á Íslandi voru enginn þann 1. Mars 2007. Á sama tíma 2006 höfðu orðið 4 banaslys. Þetta er náttúrulega stórkostlegt og alveg til sóma fyrir okkur ökumenn. Fréttamiðlar fjölluðu um þetta og einhverstaðar sá ég mynd af skilti sem sagði að enginn hefði dáið í umferðinni í ár. Frábært. Þó kom sú tilfinning yfir mig að kannski værum við að boða yfir okkur ógæfu með því að hylla gæfuna sem okkur hafði hlotist það sem af var árinu. Það kom líka í ljós og það var stutt í fyrsta banaslysið. Það er alltaf sorglegt þegar að fólk deyr. Sérstaklega er það samt sorglegt að fólk skuli deyja við aðstæður þar sem hægt hefði verið að koma í veg fyrir dauðsfall ef ökumaður hefði verið í belti, hann ekið hægar eða keyrt eftir aðstæðum og getu. Dauðsföll í umferðinni eru óþörf og allt á að vera gert til að koma í veg fyrir þau. Ef að það þýðir að sleppa þurfi að bora í gegnum fjöll fyrir milljarða króna og í stað þess gera mest eknu vegina öruggari. Þá er ég alveg til í þá fórn. Engir þjóðvegir eru eins mikið eknir og vegirnir í kringum Reykjavík. Því á það vera í algerum forgangi að gera þá tvíbreiða og aðskilja akgreinar og þetta á að gera strax og ætti að vera löngu búið að gerast. Bíða frekar með að bora göng sem munu þjóna færri íbúum.

 

Kosningar...

...eru á næsta leiti og ekki seinna vænna en að fara að mynda sér skoðun. Ég hef verið nokkuð rauður síðustu ár og kosið Samfylkingu en mun væntanlega ekki gera það í næstu kostningum. VG hefur verið að heilla mig upp á síðkastið en síðustu dagana hefur stefna þeirra alveg hætt að heilla mig og landsfundurinn hjá þeim klúðraði þessu alveg. Framsókn á enga möguleika á að ná í mitt atkvæði, sama hvað þeir gera. Frjálslyndir eru of harðir gagnvart innflytjendum fyrir minn smekk. Sjálfstæðismenn hafa aldrei fengið mitt atkvæði en kannski mun það breytast í kostningunum nú í vor. 

Vandinn hjá mér er að það er enginn einn flokkur sem er eins ruglaður í skoðunum og ég. Ég er á móti skattalækkunum og vill að við búum í þjóðfélagi þar sem vel er búið að öllum og nauðsynleg þjónusta er til staðar. Ég vil að Ísland verði fremst þjóða í notkun annars eldsneitis en olíu og nýti Biodísel, vetni, metan og annað sem við getum framleitt sjálf. Ég er fylgjandi stóriðju og vil fleiri álver og önnur ver. Það er nefnilega mín skoðun að Kyoto sáttmálinn skiptir engu máli á meðan Bandaríkin neita að samþykkja hann. Leyfum álverunum að koma til okkar og nýtum peninganna sem við fáum frá þeim til jarðhitarannsókna og landgræðslu. Umhverfismál eru ekki einkamál hverrar þjóðar heldur sameiginlegt vandamál heimsbyggðarinnar og ef það það er hægt að framleiða umhverfisvæna orku til að keyra álver á Íslandi sem minnkar notkun mengandi orku þá er það til hagsmuna fyrir alla heimsbyggðina. Ég vil að á Íslandi sé menntun ein sú besta í heimi og aðgengi að henni frítt og allir hafa jafna möguleika til náms. Ég vil að skattaumhverfið hér sé fyrirtækjavænt og að það sé engin hætta á að stórfyrirtækin flýji land vegna þess að skattumhverfið er betra einhverstaðar annarsstaðar. Já ég veit mótsögn við það sem ég skrifaði áðan. 

Í huga mér flögrar sú hugmynd að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og VG væri góð hugmynd og þeim tækist að velja það sem mér líkar úr stefnu hvors flokks en ég held að það sé bara draumur sem aldrei myndi gerast því að ég sé ekki VG gefa mikið eftir í stefnu sinni gangvart stóriðju. Kannski Sjálfstæðisflokkur og Samfylking gætu gert eitthvað gáfulegt saman. Hver veit hvað verður. Ég reyni að mynda mér skoðun næstu vikunar og verð svo væntanlega fyrir vonbrigðum eftir kostningar.

 

Jafnrétti...

...tel ég að ríki á Íslandi. Konur og Karlar eru einstaklingar sem hafa sömu möguleika til að gera það sem þeim langar til innan ramma laganna. Einstaklingar hafa mismunandi metnað og getu og áhuga og verður að virða það. Jafnrétti er ekki kynjakvótar. Kynjakvótar valda mismunun eftir kyni og það myndi valda því að einstaklingurinn yrði fyrst flokkaður eftir kyni og síðan hæfni. Þegar ráða skal í starf skal meta einstaklinginn eftir hæfni og reynslu og persónuleika ekki ráða annað kynið vegna þess að það eru færri af því kyni í greininni. Allir Íslendingar hafa jafna möguleika til þingsetu. Kannski er áhuginn og eftirfylgnin bara meiri hjá öðru kyninu en hinu. Allir Íslendingar hafa jafna möguleika til tæknináms, kannski er áhuginn bara meiri hjá öðru kyninu en hinu. Á Íslandi er jafnrétti og það að setja klausu í Stjórnarskrá um kynjakvóta myndi eyðileggja það.

 

Lífið...

...er erfitt og helst myndi ég ekki vilja vera í vinnu heldur bara geta leikið mér og sinnt áhugamálum alltaf. Mitt líf er samt ágætt. Ég á fullt af vinum, góða fjölskyldu, staða ástkonu er laus til umsóknar en ég er með augun opin, ég er nokkuð hamingjusamur og er þá ekki megintilgangi lífsins náð. Lífið er samt undarlegt og erfitt viðureignar. Okkur fer sífellt fjölgandi og það skapar vandamál þar sem að jörðin mun á endanum ekki geta séð okkur fyrir mat. Við verðum sífellt eldri og eldri og framganga læknavísindanna fjölgar okkur enn meira. Vísindamenn hafa fundi lækningar við ýmsum kvillum sem hefðu án þeirrar lækningar eyðst út og við þróast án þeirra og orðið sterkari og hæfari. En allir komast af, bæði þeir hæfustu og allir hinir. Að mínu mati er þetta vond þróun og ekki það sem náttúran eða Guð eða hvað sem þíð trúið á ætlaðist til þegar jörðin varð til. Ég á vini sem væru ekki á lífi ef ekki væri fyrir læknavísindin og því er ég mjög þakklátur en samt tel ég að náttúran ætti að fá að gera sitt í friði og við að þróast á eðlilegan hátt. En Móðir jörð mun sjá um sig og fækka okkur þegar hún er búin að fá nóg.

 

Afsakið þessa langloku. En ég hef hér komið á fram mörgum af mínum skoðunum og ég veit að fæstir eru sammála mér en svona er þetta bara. Ég hef alltaf rétt fyrir mér 


Monster Cookies

Skrímslakökur


3 Egg

1 ¼ bolli ljós púðursykur

1 Bolli sykur

½ tsk salt

½ tsk vanilludropar

1 ½ bolli Hnetusmjör

½ bolli (115gr) smjör (við herbergishita)

½ bolli Smarties

½ bolli Súkkulaðispænir

2 tsk matarsódi

4 ½ bolli haframjöl


Hitið ofninn að 180°C. Setjið Bökunarpappír á plötu.


Í stóra skál. Blanið vel saman sykri og eggjum. Bætið við salti, vanilludropum, hnetusmjöri og smjöri, Blandið vel. Bætið við Smarties, súkkulaðispænum, matarsóda og haframjöli.Blandið vel. Ath að þetta er þykk mixtúra þannig að best er að gera þetta allt bara í höndunum og sleppa því að reyna að skemma dýru hrærivélina.

 

Notið matskeið til að setja á plötuna með 3 cm millibili.

 

Bakið í 8-10 mín. Passið að ofbaka ekki. Kemur úr ofninum rosalega mjúkt og lítur út fyrir að vera óbakað en látið kólna á plötunni í amk 3 mín og flytjið síðan á grind og leyfið kökunum að kólna áður en þið ráðist á þær. Ef að það eru einhverjar eftir geymið í góðum ílátum sem helst eru loftþéttar.

 

Þetta eins og aðrar uppskriftir er bara til viðmiðunar og endilega leikið ykkur með þetta eins og þið getið. Smarties og súkkulaðispænum er hægt að sleppa og setja rúsínur eða hnetur eða bara hvað sem ykkur dettur í hug.


Are you smarter than a 5th grader?

Í nótt var frumsýndur þáttur í Bandaríkjunum sem heitir Ert þú gáfaðari en 5. bekkingur þar sem fullorðnir einstaklingar mæta í sjónvarpssal og eiga að svara spurningum sem eru byggjast á því sem 10 ára börn hafa lært á sinni skólagöngu. Formatið er álíka og í viltu vinna Milljón og er hæsti vinningur 1 milljón dala. Maður hefði haldið að þetta ætti að vera auðveld leið fyrir meðalmann að ná sér í milljón dali en eitthvað var þetta að flækjast fyrir keppendunum. Spurningar eins og "Ef að flatarmál þríhyrnings er 16 fertommur og grunnlína hans er 8 tommur, hver er þá hæð hans?" og "Rétt eða Rangt? Aðalfæða ísbjarna eru mörgæsir!" voru virkilega að flækjast fyrir langskóla menntuðum karlmanni, sem á endanum gat ekki svarað einni spurningu rétt. Við það að horfa á þennan þátt fylltist ég fordómum gagnvart Ameríkönum og hugsaði "voðalega er þetta heimsk þjóð" en svo fór ég að hugsa um hvernig meðal Íslending myndi ganga að svara spurningum um efni sem hann hefur ekki þurft að hugsa um í nokkuð mörg ár og ég hef komist að þeirri niðurstöðu að margir myndu nú væntanlega ekkert komast merkilega langt í svona spurningakeppni. Rúmfræði, Algebra, almenn brot, saga, landafræði ofl er námsefni sem kennt er í 5. bekk og ég veit um bráðgáfað fólk sem myndi varla takast að klára lokaprófin með einkunn sem næði meðaltali 10 ára nemenda. Dæmi um kennsluskrá 5. bekkjar er hér.

Að allt öðru. Ég bakaði smákökur í gær. Jamm alveg satt. Ég bakaði hnetusmjörssmartiessúkkulaðibitasmákökur og þær eru alger snilld og alveg rosalega óhollar. Endilega komið í heimsókn ef þið viljið smakka. 

Dettur ekkert meira í hug sem ég vil segja. Njótið helgarinnar og gangið hægt um gleðinar dyr.


Næsta síða »

Höfundur

Hans Orri Straumland
Hans Orri Straumland
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 3622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband